Námskeið sem skila árangri

7.is býður námskeið á sviði gæðastjórnunar, verkefnastjórnunar og ferlisstjórnunar. Námskeiðin eru stutt og hnitmiðuð. Þau hafa það markmið að innleiða viðhorf og aðferðir fyrirtækis og mynda sameiginlegan skilning á aðferðafræði, skipulagi og vinnuferlum. Lögð er áherslu á að kynna hagnýtar lausnir og aðferðir sem eru svo teknar í notkun.

Námskeiðin eru sniðin að þörfum viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Valin eru viðfangasefni og aðferðir sem falla beint að þörfum viðskiptavinar. Sem dæmi má taka námskeið um gæðastjórnunarkerfi. Þau beinast að fræðslu til að safna liði til uppbyggingar kerfis eða til að efla notkun slíkra kerfa. Þá höldum við námskeið sem nýtast áður en hafist er handa, á meðan unnið er að þróun kerfis, ef þarf að endurgangsetja kerfisgerð og leysa úr skoðanamun, eða til að virkja kerfi sem er í rekstri. Þessi námskeið hafa verið haldin við fjölbreyttar aðstæður og fyrir misstóra hópa.

Námskeiðum er stillt upp fyrir mismunandi stjórnunarstig. Eftirfarandi notendahópar eru algengir.

·         Stjórnendanámskeið til að gefa yfirsýn, rökræða áherslur og skapa sýn á viðfangsefni

·         Notendanámskeið fyrir þá sem munu nota aðferðirnar

·         Upplýsinganámskeið til að tengja störf einstakrar starfsmanna við umgjörð og aðferðir.

Við bjóðum námskeið á eftirtöldum fagsviðum

·         Stjórnunarkerfi, (Gæða-, Umhverfis-, Öryggis-)

·         Verkefnastjórnun

·         Ferlisstjórnun

Nýjustu fréttir
Nýjustu fréttir
Til hamingju...
Strendingur verkfræðistofa hefur fengið vottun samkvæmt ISO 9001:2008 Það er skemmtilegt að byggja upp...
Lækningatæki frá...
Oxymap er sprotafyrirtæki sem er að þróa nýjung á sviði heilbrigðisvísinda sem felst í...