Um 7.is ehf.Fyrirtækið 7.is hóf starfsemi sína 1. október árið 2002 og er stofnað af Gunnari H. Guðmundssyni verkfræðingi. Gunnar hefur starfað sem stjórnunar- og rekstrarráðgjafi frá árinu 1977 fyrir fjölda fyrirtækja. Hann var meðal stofnenda og eiganda Ráðgarðs hf. og starfaði hjá IMG-Ráðgarði fram til stofnunar 7.is. Gunnar hefur aðstoðað um helming þeirra íslenskra fyrirtækja sem byggt hafa upp vottunarhæf gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001. Fyrirtækið er leiðandi í þjónustu á sviði stjórnunarkerfa og hefur á undanförnum árum sérhæft sig í að þjónusta fyrirtæki sem óska eftir ráðgjöf við innleiðingu á ISO 9001 og ISO 14001 stöðlunum, auk þess að sinna fjölbreytilegri stjórnunar- og rekstrarráðgjöf. Ráðgjafar 7.is, undir forystu Gunnars, hafa komið víða að uppbyggingu, innleiðingu og rekstri stjórnunarkerfa. Viðskiptavinir 7.is eru starfandi á hinum ýmsu sviðum, í opinbera og einkageiranum, en markmið með þjónustu 7.is er að bæta árangur fyrirtækja í rekstri. |


