Þekkingarmiðstöð stjórnunarkerfa
Sérhæfing
Fyrirtækið sérhæfir sig í að skipuleggja starfsemi fyrirtækja og efla virkni þeirra með fjölþættri þjónustu við uppbyggingu stjórnunarkerfa, sem uppfylla kröfur staðla og reglugerða. Helstu staðlar eru ISO 9001, ISO 14001, OSHAS 18001 o.fl.
Þekking
Gæðastjórnun, umhverfisstjórnun og öryggisstjórnun eru okkar heimavöllur með fulltingi samstarfsaðila á ýmsum sviðum. Sérstaklega sækjum við þekkingu þar sem starfsgreinabundnar kröfur bætast við kröfur staðla. Við kappkostum að svara kröfum úr öllum áttum í einu stjórnunarkerfi, Stjórnunarkerfi fyrirtækisins.
Árangur
Okkar hugsjón er að leysa verkefni með stuttu snörpu átaki þar sem tími stjórnenda er vel nýttur og árangur kemur fljótt í ljós.
| Nýjung á ráðgjafamarkaði! - ISO 9001 á 7 vikum |
7.is býður upp á þjónustunýjung fyrir þá sem vilja takast á við kröfur ISO 9001 á sem stystum tíma. Þessi þjónusta hefur verið þróuð til að mæta þörfum ört vaxandi hóps fyrirtækja sem vilja skipuleggja og samþætta stjórnun. Á 7 vikum fá menn tækifæri til að læra allt sem þarf til að reka virkt ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi undir styrkri leiðsögn ráðgjafa 7.is