Fréttir
16.12.09
Landsvirkjun Power á góðu skriði
Landsvirkjun Power fékk nýverið vottun samkvæmt ISO 9001 gæðastjórnunarstaðli. Félagið er dótturfyrirtæki Landsvirkjunar og var áður verkfræði- og framkvæmdasvið fyrirtækisins. Nú hefur því verið breitt í þjónustufyrirtæki sem stundar ráðgjöf víða um heim auk þess að annast verkefni fyrir Landsvirkjun hér heima.
Nýtt viðskiptalíkan kallaði á breytingar á eðli fyrirtækisins. Jákvæð viðhorf starfsmanna tryggðu árangurinn. Lögð var talsverð vinna í að breyta starfseminni og skilgreina ferli þjónustunnar til að bæta þau og auka skilvirkni.
Stjórnunarkerfið var þróað í þeim tilgangi að gera starfsemina samkeppnishæfa og gjaldgenga á alþjóðamarkaði.
Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu verkefni!
Nýjustu fréttir
Nýjustu fréttir
Til hamingju...
Strendingur verkfræðistofa hefur fengið vottun samkvæmt ISO 9001:2008 Það er skemmtilegt að byggja upp...
Lækningatæki frá...
Oxymap er sprotafyrirtæki sem er að þróa nýjung á sviði heilbrigðisvísinda sem felst í...